TVG Zimsen
 
Puma
 
Getraunastarf
 
Fotbolti.net
 

Umfjöllun: Markaregn í Mjóddinni
Tómas Ţór Ţórđarson | Fös. 02. júlí 2010 kl. 11:18

Viktor Örn hefur átt frábært tímabil til þessa.
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir 

Íslandsmót, 9. umferð.

ÍR 0 - 4 Víkingur
0-1 Marteinn Briem (6.)
0-2 Viktor Örn Guðmundsson (10.)
0-3 Helgi Sigurðsson (15. víti)
0-4 Viktor Örn Guðmundsson (47.) 

Byrjunarliðið (4-4-2): Maggi, Tommi, Svanur, Egill, Siggi, Marri (Pétur 75.), Kiddi (Walter 46.), Halli, Viktor (Hjalti 80.), Jakob, Helgi.
Ónotaðir: Dige, D29.

B-in
2B - Viktor Örn
1B - Halli, Marri, Svanur, Jakob.
Maður leiksins: Viktor Örn Guðmundsson

Leikskýrslan á vef KSÍ
Tölfræði leikmanna á Víkingur.net


Það rigndi eldi og brennisteini í Mjóddinni þegar Víkingar völtuðu yfir ÍR í toppslag í 1. deildinni, 4-0. Með sigrinum komust Víkingar upp að hlið Leiknis á toppi deildarinnar með nítján stig og hafa nú unnið þrjá leiki í röð í deild án þess að fá á sig mark. Viktor Örn Guðmundsson var án efa maður leiksins en hann átti þátt í öllum mörkunum fjórum.

Það var eins og Víkingar spáðu ekkert í þeim sem þurftu að vinna á bikarleik FH og KA og komust því ekki fyrr en rétt ríflega tuttugu mínútum of seint í Mjóddina. Víkingar kláruðu bara leikinn á fyrsta korterinu með þremur mörkum og þeir sem mættu því of seint fengu afar lítið fyrir peninginn.

Veislan hófst strax á sjöttu mínútu þegar Marri Briem skoraði eftir laglegan undirbúning Viktors Arnar. Gleðitíðindi að Marri sé kominn almennilega í gang eftir meiðslin og farinn að setja mörk því þarna fer virkilega góður leikmaður sem styrkir hópinn gríðarlega.

Viktor Örn skoraði síðan fjórum mínútum síðar fyrra mark sitt sem var einkar glæsilegt. Eftir hornspyrnu barst honum boltinn fyrir utan teiginn hægra meginn og lét hann bara vaða, í samskeytin og inn, takk fyrir það. Viktor fiskaði síðan víti fimm mínútum síðar. Á punktinn fór Helgi Sigurðsson sem skoraði auðveldlega. 3-0 eftir fimmtán mínútna leik.

Eftir þetta fjaraði leikurinn meira og minna út. ÍR-ingar héldu boltanum mun betur það sem eftir var fyrri hálfleiksins en komust ekkert áleiðis gegn vel skipulögðu liði Víkinga og sterkri vörn. Í vörnina vantaði þó Milos sem var meiddur en Svanur kom inn í hans stað og stóð sig mjög vel.

Ef leikurinn var ekki búinn þegar flautað var til hálfleiks myrti Viktor Örn hann í upphafi þess seinni. Hann skoraði þá annað glæsilegt mark, í þetta skiptið fékk hann of mikið pláss fyrir utan teig ÍR-inga og hamraði boltann á lofti í netið. Fjögur mörk því komin og átti hann þátt í öllum þeirra.

ÍR-ingar voru einu sinni nálægt því að skora en þeir áttu sláarskot af löngu færi í fyrri hálfleik. Annars áttu þeir aldrei möguleika gegn Víkingsliðinu sem var staðráðið í að landa sigri í þessum toppbaráttuslag.

Auk Viktors og Svans sem hafa verið nefndir hér áttu Halli og Jakob virkilega góðan leik. Halli var mjög sterkur inn á miðjunni og þá var Jakob afskaplega duglegur þó hann hafi reyndar gert lítið fram á við.

Í byrjunarliðið vantaði þrá lykilmenn. Þá Dofra, Milos og Þobba og reyndi því í fyrsta skiptið eitthvað á breiddina. Ekki er annað hægt að segja en að 4-0 sigur í toppslag hafi verið ágætis svar frá hópnum sem fær nú tíu daga hvíld fyrir næsta verkefni.