TVG Zimsen
 
Puma
 
Getraunastarf
 
Fotbolti.net
 

Leifur:Stoltur af framlagi míns liđs
Guđjón Guđmundsson | Mán. 08. mars 2010 kl. 21:51

 

L
Leifur Garðarsson

Leifur Garðarsson, þjálfari Víkinga, er sáttur við frammistöðu sinna manna í úrslitaleiknum þrátt fyrir tap á móti KR. Vikingur.net fór yfir leikinn með Leifi, markið umdeilda,  glæsimörk Halldórs Smára og næstu verkefni liðsins.



Leikurinn á móti KR var hörkuleikur og frábær skemmtun fyrir áhorfendur, varstu sáttur með frammistöðu þinna manna ?

Ég get verið sammála því að leikurinn var frábær skemmtun fyrir fjölmarga áhorfendur.  Við erum alls ekki sáttir við að tapa leiknum og mér fannst liðið mitt standa sig mjög vel.  Við vorum duglegir og vinnusamir og höfðum virkilega trú á því að við gætum sigrað.  En ég var stoltur af framlagi míns liðs í leiknum.

Halldór Smári skoraði 2 frábær mörk í leiknum, ertu búinn að vera með hann á skotæfingum ?
Ég ætla nú ekki að fara eigna mér eitthvað í þessu.  Halldór Smári hefur verið að átta sig meir og meir á því hvar markið er að undanförnu.  Hann leggur hart að sér við æfingar og uppsker eins og hann sáir.  Gaman fyrir pilt að skora þessi mörk eftir erfiða persónulega viku. Sýnir hversu öflugur einstaklingur hann er.

Var eitthvað sem þú varst ósáttur með í leiknum?
Aðallega var  ég ósáttur við að tapa leiknum.  Vissulega voru atriði í okkar leik sem við vorum ekki alveg nægjanlega sáttir með og það ræðum við á næstu æfingum og við menn einstaklingslega.  Hlutir sem þarf að laga og gera betur, eins og gengur.

 Hvað fannst þér um fyrsta mark KR, var þetta ekki rangstæða ?
Mér fannst þetta vera kolrangstaða.  Fólk úr báðum félögum sem sat hægra megin við okkar varamannabekk staðfesti þann grun minn.  Fúlt að fá á sig ólöglegt mark.  En við sem störfum að leiknum gerum víst allir mistök á einhverjum tímapunkti.  Við áttum hellings möguleika í leiknum þrátt fyrir þetta fyrsta mark.

Nú hefur þú verið nokkuð ósáttur með dómarana í síðustu tveimur leikjum á móti KR og FH, fannst þér halla á okkur í þessum leikjum ?
Dómararnir réðu ekki úrslitum þessara leikja.  En vissulega fannst mér virðingarstigið vera mun hærra gagnvart FH og KR heldur en okkur.  En er það ekki bara þannig að maður ávinnur sér ákveðna virðingu og það verðum við bara gera með því að sýna hvað í okkur býr.

 Síðustu tveir leikir hafa tapast, en ertu ekki sammála að það hafi verið margt mjög jákvætt í þeim leikjum og liðið virðist vera á réttri leið ?
Við vorum vissulega að spila við tvö sterkustu lið landsins í þessum leikjum og það var margt jákvætt í okkar leik.  Við þurfum síðan að fínstilla ákveðna hluti og laga eitt og annað.  Liðið hefur verið að bæta sig jafnt og þétt og mikilvægt að menn haldi einbeitingu og trúi á verkefnið, undirbúi sig ávallt af kostgæfni og að hugarfarið sé í lagi.  Þannig höldum við réttri leið í átt að markmiðum okkar.

Það er stutt í næsta leik sem er fimmtudaginn á móti Fjölni í deildarbikarnum, hvernig leggst sá leikur í þig ?
Leikurinn gegn Fjölni leggst vel í mig eins og allir aðrir leikir.  Fjölnir er með blöndu af ungum og stórefnilegum leikmönnum, sem og eldri refum.  Þeir hafa verið óheppnir í mörgum leikja sinna það sem af er en eru að fínstilla sig. Þetta verður hörkuleikur og mikilvægt að við séum í toppstandi andlega og líkamlega á fimmtudaginn.
 
Nú hefur það loðað við liðið að eiga góða leiki á móti "stóru" liðunum, en detta niður á móti "litlu" liðunum. Óttastu að það verði spennufall í leiknum á móti Fjölni ?
Það er rétt að slíkt loðaði við liðið í fyrra og var kannski hluti af hugarfari sem við erum að vinna í að laga.  Það er mikil samkeppni í okkar hópi og ég hef mikla trú á verkefninu og því að leikmenn mæti ávallt rétt innstilltir í alla leiki.  Þannig náum við árangri Víkingar.