TVG Zimsen
 
Puma
 
Getraunastarf
 
Fotbolti.net
 

Umfjöllun: Glćsimörk Halla ekki nóg gegn KR í úrslitum Reykjavíkurmótsins
Tómas Ţór Ţórđarson | Mán. 08. mars 2010 kl. 10:45

Strákarnir fagna glæsilegu marki Halla.
Mynd: Gísli Baldur

Það ætlar að reynast Víkingum erfitt að vinna blessað Reykjavíkurmótið en á sunnudaginn tapaði liðið sínum þriðja úrslitaleik á fimm árum. Nú lágu Víkingar gegn KR, 3-2, í hörkuleik þar sem Halldór Smári Sigurðsson skoraði tvö mögnuð mörk.


Víkingur 2 - 3 KR
0-1 Björgólfur Takefusa (25.)
0-2 Kjartan H. Finnbogason (69.)
1-2 Halldór Smári Sigurðsson (71.)
1-3 Gunnar Örn Jónsson (79.)
2-3 Halldór Smári Sigurðsson (83.)

Víkingar eru næstbestir í Reykjavík á eftir KR árið 2010 en Vesturbæingar höfðu betur í rimmu liðanna í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins, 3-2. Halldór Smári Sigurðsson skoraði bæði mörk Víkinga en annað þeirra er klárlega fallegasta mark sem skorað hefur verið í Egilshöllinni.

Jafnræði var með liðunum framan af í leiknum og var greinilega mikill hugur í Víkingum að gera vel eftir kettlingaframmistöðuna gegn KR. Því miður voru það þó KR-ingar sem komust yfir með kolólöglegu marki, að mati þeirra sem sáu vel til.

Boltinn barst þá inn fyrir vörn Víking á Björgólf Takefusa sem lék upp að marki, sólaði Magga og skoraði. Víkingar sem sátu í línu við atvikið trylltust, jafnt sem þjálfarinn, Leifur Garðarsson, og vildu rangstöðu. Var það mat allra, bæði Víkinga og hlutlausra, að um rangstöðu hafi verið að ræða.

Hinum megin voru Víkingar hársbreidd frá því að jafna metin aðeins tveimur mínútum síðar þegar Helgi Sigurðsson fíflaði gamlan Víking, Grétar Sigfinn, upp úr skónum og náði skoti á mark. Skotið var varið út í teig munaði litlu að Þobbi hefði potað boltanum yfir línuna.

Fjörið hófst þó í seinni hálfleik, eða þegar þá helst þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka. Það byrjaði með því að Kjartan Henry Finnbogason kom KR í 2-0 með skallamarki eftir hornspyrnu. Var hann gjörsamlega óvaldaður og því ljóst að einhver drullaði á sig í dekkningunni en engin hendi fór á loft.

Héldu margir að dagskránni væri lokið en Halldór Smári Sigurðsson var á öðru máli. Halldór hefur skorað tvö mörk á meistaraflokksferlinum, með talinn annar flokkur, og hafa þau bæði komið á þessu undirbúningstímabili. Hann átti eftir að tvöfalda þá tölu áður en flautað var til leiksloka.

Fyrra mark hans sem minnkaði muninn í 2-1 er án nokkurs vafa fallegasta mark sem skorað hefur verið í húsi Egils. Halli var með boltann á lofti ca. fjörtíu metrum frá marki og sá Þórð Ingason standa aðeins of framarlega í teignum. Halli vippaði ekki boltanum yfir hann, heldur negldi þrumufleyg beint í samskeytin, stórkostlegt mark.

Það er reyndar gaman að segja frá því að Víkingar áttu fyrir fallegasta mark Egilshallarinnar. Það kom á undirbúningstímabilinu 2006 þegar Viktor Bjarki Arnarsson skoraði með "Arnarskotinu" svokallaða gegn Val. Viktor lék einmitt með KR í leiknum, í fyrsta skiptið á hans ferli gegn uppeldisfélagi sínu, Víkingi. Það fór ekki á milli mála með hverjum Viktor hélt í leiknum. Allavega reyndi hann allt hvað hann gat að hjálpa sínum fyrrum félögum.

KR-ingar svöruðu að bragði áður en Halli dúndraði öðru skoti í sömu samskeyti sem er náttúrulega bara bannað. Annað ótrúlega fallegt mark frá Halla sem vissi hreint ekki hvort hann ætti að fagna eða hlæja. Víkingar lögðu eftir þetta mikið kapp á að jafna metin en KR-ingar héldu út lönduðu Reykjavíkurmeistaratitlinum.

Ekki er hægt að vera svekktur með frammistöðu strákanna sem stóðu sig allir með prýði. Milos Glogovac átti stórleik í vörninni og að sama skapi var Halli frábær á miðjunni, að mörkunum tveimur undanskildum. Helgi Sig var sterkur frammi og fór nokkrum sinnum illa með gamla Víkinginn, Grétar Sigfinn.

Það sást samt í úrslitaleiknum að Víkingar voru ekki þar út af neinni heppni. Víkingar veittu KR-ingum harða keppni í leiknum og áttu jafnvel skilið sigur og þeir hvítu og svörtu. Nú hafa tveir leikir tapast í röð og þurfum við að drífa okkur aftur á sigurbraut. Maður hálfvorkennir Fjölnir að vera næsta bráð hungraðra Víkinga í Lengjubikarnum.

Víkingur (4-5-1): Þormar, Tommi, Milos, Egill, Hjalti, Kiddi, Halli, D29 (Siggi Lár), Þobbi (Elvar), Pétur (Walter), Helgi (Svanur).