|
 |
|
|
Umfjöllun: Tap gegn FH
Guđjón Guđmundsson | Fös. 26. febrúar 2010 kl. 08:48
Í gær mættust Víkingur og FH í lengjubikarnum. Leiknum lauk með sannfærandi 2-0 sigri FH. Mörk FH skoruðu Gunnar Guðmundsson og Ólafur Páll Snorrason. Þetta var fyrsta tap Víkingsliðsins síðan í nóvember.
 |
| Varnarbuffið Egill var meiddur. |
Í lið Víkings í gær vantaði nokkra menn. Egill Atlason, Pétur Svans og Marteinn voru meiddir auk þess sem Danni Hjalta fékk frí. Þetta þýddi að nokkrar breytingar voru gerðar á liðinu frá því í síðasta leik. Chris kom inní miðvörðinn fyrir Egil. Tommi fór í bakvörðinn og Walter færði sig á kantinn. Siggi Lár fór svo á vinstri kantinn fyrir Elvar sem var á bekknum.
Leikurinn byrjaði afar illa fyrir Víkingsliðið, leikmenn virkuðu mjög stressaðir og óöruggir í öllum sínum aðgerðum. Ekki laust við að þeir hafi borið full mikla virðingu andstæðingunum. Fyrsta mark leiksins kom á þriðju mínútu. Þá kom fyrirgjöf sem Maggi virtist vera á leiðinni að grípa en á síðustu stundu kom fát á hann og reyndi hann að kýla boltan. Það tókst ekki betur en svo að boltinn datt beint fyrir fætur Gunnars Guðmundssonar sem skoraði auðvelt mar. Eftir markið hélt vandræðagangur Víkinga áfram og gerðu þeir sig seka um mörg mistök. Smátt og smátt tókst leikmönnum Víkings að komast í takt við leikinn en ekki tókst þeim að jafna fyrir leikhlé og var staðan því 1-0 í hálfeik fyrir FH. Síðari hálfleikur var frekar rólegur. Nokkuð jafnræði var með liðunum en Víkingum gekk illa að skapa sér góð færi. Annað mark leiksins kom á 66 mín. Þá skoraði Ólafur Páll Snorrason með glæsilegu skoti eftir slæm mistök hjá Hjalta í vörninni. Víkingar fengu eitt gott færi í leiknum þegar Helgi sig slapp einn inn fyrir vörn FH eftir frábæra sendingu Þobba. Skot Helga fór því miður framhjá.
Seinni hálfleikur var mun betri hjá Víkingsliðinu en þó verður að viðurkennast að FH liðið var betri aðilinn og hefði hæglega getað bætt við fleiri mörkum. Ljóst er að til að vinna lið eins og FH þarf Víkingsliðið að eiga algjöran toppleik og ekki gengur að gefa jafn ódýr mörk og gerðist í gær. Víkingsliðið var algjörlega út á þekju í byrjun leiks og var ekki að sýna sömu spilamennsku og það hefur gert í síðustu leikjum.
BYRJUNARLIÐ VÍKINGS:
Maggi
Tommi
Milos
Chris
Hjalti
Walter
Kiddi Magg
Þobbi
Halldór S.
Siggi Lár
Helgi Sig (c)
Varamenn: Svanur, Diege, Elvar og Sverrir komu inná fyrri Chris, Halldór Smára, Kidda Magg og Hjalta.
|
|