TVG Zimsen
 
Puma
 
Getraunastarf
 
Fotbolti.net
 

Upphitun: Risarnir mćtast
Guđjón Guđmundsson | Ţri. 23. febrúar 2010 kl. 21:56

Það er nóg að gera þessa dagana hjá Víkingum, á fimmtudaginn mætir Víkingsliðið Íslandsmeistörum FH í öðrum leik liðanna í Deildarbikarnum. Bæði lið sigurðu fyrsta leik sinn 3-0 og því er um sannkallaðan toppbaráttuslag að ræða.



Hvað? Hvar Hvenær?
Lengjubikar, 2.leikur. FH – Víkingur, fimmtudagurinn 25. febrúar klukkan 19.15 í Egilshöll.

Andstæðingurinn:
FH-ingar eru andstæðingar Víkinga í næsta leik og ljóst að leikurinn verður mjög erfiður. FH hefur unnið Íslandsmeistaratitilinn  fimm sinnum á síðustu sex árum og eru ríkjandi Deildarbikarmeistarar.  Lið FH er nokkuð breytt frá því síðasta sumar því nokkrir lykilmenn hafa horfið á braut, en FH-ingar hata ekki að rífa upp veskið og eru búnir að versla nokkra sterka leikmenn. Gunnleifur Gunnleifsson, Gunnar Guðmundsson eru mættir í Fimleikafélagið auk þess sem Sverrir Garðarsson sem lék með liðinu á láni síðasta sumar mun áfram leika með FH.  Liðið fékk að auki bakvörðinn sjalla Jón Ragnar Jónsson frá  Þrótti.  FH vann fyrsta leikinn sinn í deildarbikarnum á móti Val mjög sannfærandi 3-0. Liðið virkaði mjög sterkt og greinilegt að liðið er ennþá eitt það allra sterkasta á Íslandi.

Lykilmenn:
Atli Guðnason var valinn besti leikmaður Íslandsmótsins 2009 og hann er leikmaður sem mun valda varnarmönnum Víkings miklum vandræðum. Annar lykilmaður er Matthías Vilhjálmsson sem  sprakk út síðasta sumar og stóð sig frábærlega. Landsliðsmarkmaðurinn Gunnleifur Gunnleifsson hefur staðið sig vel í undirbúningsleikjunum og ljóst að hann styrkir FH liðið gríðarlega mikið. Bjartasta vonin í Hafnafirði er svo miðjumaðurinn Björn Daníel Sverrisson. Margir spá því að hann muni springa út í sumar og vera kóngurinn á miðjunni hjá FH. En það er ljóst að slíkir draumar munu ekki rætast á fimmtudaginn, enda Kiddi Magg á svæðinu.

Síðustu viðureignir:

bikar höski
Bikar Höski
Lið Víkings og FH hafa spilað 13 leiki á síðustu 10 árum. FH hefur vinninginn í þeim viðureignum, hafa unnið sex leiki en Víkingar þrjá.  Fjórum leikjum hefur lokið með jafntefli.  Markatalan í þessum 13 leikjum eru 26-11 FH í vil. FH hefur unnið síðustu 5 viðureignir liðanna en síðast vann Víkingur árið 2006, 1-2 í bikarkeppninni  á Kaplakrikavelli og var það enginn annar en Bikar Höski sem skoraði bæði mörk Víkings.  Síðast þegar liðin mættust var það í Deildarbikarnum árið 2008 og sigraði FH 5-0. Var það almennt álit manna á vellinum að sá sigur hafi verið nokkuð ósanngjarn.

Síðustu 5 leikir liðanna:
ÚD 16.09.06 FH 4 – 0 Víkingur
DB  09.03.07 Víkingur 2 – 3 FH: Grétar Sigfinnur, Jón Björgvin (sleggjan)
ÚD 03.07.08 FH 4 – 1 Víkingur: Sjálfsmark
ÚD 29.09.07 Víkingur 1 – 3 FH: Sinisa Kekic
LB 22.02.08 FH 5 – 0 Víkingur:

 Pétur Viðars

Pétur Viðarsson varð að manni í Víkinni
Mynd www.fotbolti.net
Tengingin: Í leikmannahópi FH eru tveir leikmenn sem spiluðu sem lánsmenn með Víkingi árið 2008. Það eru þeir Pétur Viðarsson og Eiríkur Kúld. Einn leikmaður í Víkingsliðinu hefur spilað með FH og það er Davíð Ellertsson sem er uppalinn FH-ingur. Egill Atlason er líka uppalinn FH-ingur en hann hefur ekki spilað með mfl. félagsins. Aðrir leikmenn sem hafa spilað með báðum liðum á undanförunum árum eru Höskuldur Eiríksson, Hermann Albertsson og Ólafur Adolfsson.  Svo ef kafað er djúpt í sögubækurnar þá má finna mikla meistarar eins og Andra Marteins og Atla Einarsson sem spiluðu með báðum þessum liðum.  
En það eru ekki bara leikmenn sem tengja þessi félög því þjálfari okkar Leifur Garðarsson var aðstoðarþjálfari Óla Jóh hjá FH þegar þeir byggðu upp það veldi sem FH er í dag.

Dómaratríó:
Það er augljóst að KSÍ á von á hörkuleik og sækja því dómara leiksins alla leið uppí Breiðholt. Leiknismaðurinn knái Gunnar Jarl Jónsson dæmi leikinn og mun án nokkurs vafa gera það vel. Hans aðstoðarmenn verða Einar Sigurðsson og Smári Stefánsson.


Víkingsliðið: Víkingsliðið er á fljúgandi siglingu þessa dagana. Liðið hefur ekki tapað síðan í nóvember og hafa spilað 10 leiki í röð án þess að tapa. Það er komið mikið sjálfstraust í liðið og spilamennskan tekur framförum leik frá leik. Síðastliðinn laugardag mætti liðið KA í fyrsta leik sínum í deildarbikarnum og vannst þar góður og öruggur sigur, 3-0. Með fullri virðingu fyrir KA er ljóst að verkefni fimmtudagsins verður mun erfiðara og verður gaman að sjá liðið kljást við besta lið landsins.
Allir leikmenn liðsins eru heilir fyrir utan Marra sem er meiddur. Það er því ljóst að Leifur getur stillt upp sterku liði á móti sínum fyrrverandi félögum í FH.

LÍKLEGT BYRJUNARLIÐ VÍKINGS:

Maggi
Walter
Milos
Egill
Hjalti
Danni Hjalta
Kiddi Magg
Þobbi
Halldór S.
Elvar
Helgi Sig (c)