TVG Zimsen
 
Puma
 
Getraunastarf
 
Fotbolti.net
 

Umfjöllun: Í úrslit eftir sigur á Fylki
Tómas Ţór Ţórđarson | 14. febrúar 2010 kl. 23:25

Maggi varði eina spyrnu í vítakeppninni.
Mynd: Gunnlaugur Júlíusson.

Víkingar munu leika til úrslita í Reykjavíkurmótinu eftir sigur á Fylki í undanúrslitum. Leikurinn fór í vítaspyrnukeppni þar sem Víkingar höfðu betur en Hjalti Már Hauksson skaut Víkingum í vítaspyrnukeppnina í uppbótartíma.


Víkingur 2(6) - 2(5) Fylkir
0-1 Valur Fannar Gíslason (13.)
1-1 Helgi Sigurðsson (77.)
1-2 Albert Brynjar Ingason (82.)
2-2 Hjalti Már Haukssson (90.+1)
Rautt: Tómas Joð Þorsteinsson, Fylkir (’90+1)

Víkingar kváðu niður tvær grýlur í undanúrslitaleik sínum í Reykjavíkurmótinu. Bæði unnu Víkingar Fylki sem gerist nær aldrei og höfðu betur í vítaspyrnukeppni sem er ekki algengt hjá Víkingum.

Það voru þó Fylkismenn sem komust yfir strax á 13. mínútu þrátt fyrir fína byrjun hjá Víkingum í leiknum. Maggi Þormar fór þá í smá skógarhlaup út í teiginn og skallaði Valur Fannar Gíslason knöttinn í tómt netið.

Nánast í næstu sókn barðist Helgi Sig hatrammlega fyrir boltanum við endalínu Fylkismanna og kom knettinum fyrir markið. Þar kom á fullu gasi Halldór Smári Sigurðsson en var felldur þegar hann ætlaði að koma boltanum yfir línuna og vildu allir Víkingar fá vítaspyrnu. Kristinn Jakobsson dæmdi ekkert.

Ekki var skorað meira í fyrri hálfleik en í þeim seinni fengu Víkingar svo sannarlega tækifæri til að skora. Fyrst byrjaði Helgi Sig á að klúðra dauðafæri einn gegn markverði og skömmu síðar varði Fjalar aftur vel í Fylkismarkinu þegar Víkingar gerðu sig svo líklega.

Egill Atlason, miðvörður, fékk einnig tvö fín færi. Fyrst var skalli hans hreinsaður af línunni eftir hornspynu og þá skaut hann framhjá úr mjög góðu færi, einnig eftir fast leikatriði.

Það kom þó að því að Víkingar skoruðu og það var úr vítaspyrnu sem var réttilega dæmd á leikmann Fylkis sem handlék knöttinn inn í teig. Helgi Sig átti ekki í miklu vandræðum með að setja boltann í netið, 1-1.

Kappið var þó meira en forsjáin hjá Víkingum mínúturnar eftir marið og tóku Fylkismenn forystuna aftur aðeins fjórum mínútum seinna. Mikill heppnisstimpill var þó yfir markinu en boltinn barst til framherja þeirra fyrir algjöra slysni og skoraði hann eftir að hafa leikið á Magga í markinu.

En dramatíkin var ekki búin. Í uppbótartíma var Walter Hjaltested felldur af Tómasi Joð Þorsteinssyni, leikmanni Fylkis, þegar hann var að sleppa einn að marki. Þar sem ekki er leikin framlenging í Reykjavíkurmóti héldu margir að þarna væri hann að tryggja Fylkismönnum sigurinn með þessu broti, enda fengu Víkingar hvorki mark né vítaspyrnu, brotið utan teigs.

Þá steig upp myndarlegur Norðanmaður, örvfættur öðlingur að nafni Hjalti Már Hauksson. Hjalti klíndi boltanum í netið beint úr aukspyrnunni og kom Víkingum í vítaspyrnukeppni. Rauða spjald Tómasar því ekki til neins.

Bæði lið klúðruðu fyrstu spyrnum sínum en Víkingar skoruðu úr fjórum á meðan Fylkismenn skoruðu aðeins úr þremur. Maggi Þormar varði og greip eina spyrnu Fylkismanna. Var það svo Svanur sem skoraði úr sigurspyrnunni þó tæpt hafi það verið. Víkingar í úrslit sem verða leikin 7. mars í Egilshöllinni klukkan 20:00.

Egill og Milos léku vel í miðvörðunum í kvöld og Hjalti átti fínar spyrnur fram á við. Inn á miðjunni var Halli harður og átti nokkra spretti. Walter var mjög góður úti á kanntinum og Helgi sívinnandi frammi eins og Þobbi.

Heilt yfir lék Víkingsliðið vel og átti ekkert minna en sigur skilið úr leiknum, því skal algjörlega haldið til haga.

Næst er það deildarbikarinn en heilir þrír leikir í honum verða leiknir fram að úrslitaleiknum í Reykjavíkurmótinu. Næsti leikur Víkinga er gegn KA í Egilshöllinni á laugardaginn.

Byrjunarliðið: Maggi, Tommi, Milos, Egill, Hjalti, Kiddi (Svanur), Halli, Walter, Þobbi, Elvar (Dige), Helgi.