|
 |
|
|
Víkingar í undanúrslit
Guđjón Guđmundsson | Fim. 11. febrúar 2010 kl. 22:19
Víkingar tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum Reykjavíkurmótsins með 2-1 sigri á Þrótti. Með sigrinum tryggði liðið sér að auki sigur í riðlinum. Mörk Víkings skoruðu Egill Atlason og Þobbi.
Leikurinn í kvöld var ágætis skemmtun og ljóst að bæði lið ætluðu sér sigur enda áttu þau bæði möguleika á sæti í undanúrslitum. Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik en í þeim síðari færðist meira fjör í leikinn. Þróttarar komust yfir eftir slæm varnarmistök hjá Hjalta.
Við markið hresstust Vikingar og jöfnunarmarkið kom aðeins 5 mínútum síðar. Þá fengu fengu Víkingar aukaspyrnu við vítateig Þróttar eftir að markvörður Þórttar hafði farið í fáránlegt úthlaup sem endaði með því að hann straujaði Pétur Svans og hlaut að launum gult spjald. Flestir voru reyndar á því að rautt hefði verið sanngjarnt. Pétur tók aukaspyrnuna sjálfur og gaf á Egil Atlason sem skallaði boltan glæsilega í netið. Eftir markið var aldrei spurning hvort liðið myndi sigra og var það Þobbi sem skoraði sigurmarkið eftir glæsilega sendingur frá Pétri Svans.
Þó að mörkin yrðu ekki fleiri var fjörið ekki búið. Markvörður Þróttar fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt eftir enn eitt skógarhlaupið. Sverrir Garðarsson leikmaður 2.fl Víkings fékk líka 2 gul og það aðeins á 10 mín kafla. Mjög hressandi innkoma og alltaf gaman að sjá fallegar tæklingar. Þriðja rauða spjaldið fékk svo Erlingur Jack leikmaður Þróttar fyrir fólskulegt brot á besta leikmanni vallarins Pétri Svans.
Niðurstaðan var 2-1 sigur og liðið mætir Fylki á sunnudaginn í undanúrslitum.
Lið Víkings:
Magnús Þormar
Tommi Milos Egill Atla Hjalti
Walter Halldór Smári Svanur Pétur "tattoo"
Þobbi
Helgi Sig. (c)
Varamenn sem komu inná: Chris, Kjartan Dige, Sverrir, Kiddi Magg.
|
|